|
27.01.2012 13:27:01 / fhue
»
16.01.2012 14:48:54 / fhue
»
14.12.2011 20:49:27 / fhue
»
03.12.2011 14:37:42 / fhue
Myndir frá haustfundi S Í H U í Sveinbjarnargerði. ( Myndir Þ.S.P. )
»
03.12.2011 14:03:05 / fhue
Var að setja inn myndir frá heimsókn F.H.U.E á fmælisdaginn 19. nóvember hjá Nikkolínu. ( Þ.S.P. )
»
08.08.2011 18:23:46 / fhue
Var að setja inn myndir frá Breiðumýrarhátíðinni 22 til 25 júlí 2011. ( seinni hluti ) Þór Steinberg Þálsson.
»
07.08.2011 21:08:20 / fhue
Var að setja inn myndir frá Breiðumýrarhátíðinni 22 - 25 júlí 2011. Myndir: ( Þ.S.P. )
»
29.08.2010 21:56:06 / fhue
Var að setja inn myndir frá Breiðumýrar hátíðinni,meira síðar. Þór Steinberg Pálsson.
»
11.10.2008 14:22:52 / fhue
Var að setja inn myndir frá landsmótinu, gæði sumra þeirra er ekki nógu góð, en vona samt að einhverjir hafi gaman að skoða þær. Þór Steinberg Pálsson.
»
04.10.2008 14:11:48 / fhue
Myndir komnar í "Myndasöfn" frá Breiðumýrarhátíðini er fram fór dagana 24. til. 27 júlí, fór mjög vel fram og var veðrið alla dagana mjög gott. Þrír spilarar sem sátu sunnan við húsið, urðu að flýja í forsælu, vegna hitans, og á bak við húsbíl, og vegna þess nafns, er aftan á bílnum stóð, fannst mér tilvalið að kalla þá, REYMÓ TRÍÓ. Þ.S.P.
»
29.09.2008 21:27:41 / fhue
Dansleikurinn í Lóni gekk, fínt. Haukur gamli Ingimars startaði ballinu og Konni litli sló undir með honum, Eitthvað var Siggi að prufa bassann sinn með honum en hann bara sat út í sal og spilaði á bassann og spjallaði við kærustuna sína á meðan. Síðan kom Jón Hrólfs eftir langt hlé og spilaði með stæl, alveg glimrandi flotta músik, en með honum voru Snorri Guðvarðar á gítar, og Leibbi á trommur, og Stefán Gunnarsson sonur Gunna Tryggva (í Póló og Bjarka) á bassa. Gaman að sjá að Jón Hrólfs er vaknaður aftur af löngum dvala og vonandi verður hann með okkur í vetur. Síðan kom Einar Guðmunds og co, með sitt prógram og Guðmann Jóhannsson og félagar kláruðu svo dansleikinn. Ætlum nú að fara að reyna að byrta myndir frá dansleikjunumní vetur hér á bloggið hjá okkur. Ágætis fjöldi var á dansleiknum um 50 - 60 manns, en það hefði alveg mátt koma fleyri, það koma bara fleyri næst þar sem fólk er kanski ekki alveg búið að átta sig á að dansleikjarhöld FHUE eru byrjuð. Nú svo viljum við minna á aðalfundinn sem verður 9. oktober, endilega mæta og vera með í umræðunum um starfsemi félagsins.
»
19.08.2008 20:31:03 / fhue
Það má segja að það hafi gengið vel hjá stórsveitinni á landsmótinu í sumar. Stórsveitin átti sitt prógramm kl. 14.30 á laugardeginum. Það gekk frekar vel og menn nokkuð öryggir orðnir eftir miklar og strangar æfingar. Roar Kvam stjórnaði að sinni stökustu ró og laðaði fram það besta frá sveitinni. Eftir síðasta lag fékk sveitin mjög gott og mikið uppklapp. Sveitin kom svo aftur fram og tók eitt aukalag, en sveit FHUE var eina sveitin á öllu landsmótinu sem var klöppuð upp. Segja menn að sveitin hafi aldrei verið betri en einmitt nú, og megi því þakka frábærum stjórnanda og þrautsegju meðlima sveitarinnar. Nú verður gert hlé á dagskrá FHUE fram að hausti, þegar vetrardagskráin hefst að nýju. Það verður nánar tilkynnt hér á síðunni hvenær dansleikir hefjast að nýju með haustinu. Biðjum við því að fólk fylgist með hér og kíki á síðuna.
»
03.07.2008 21:23:07 / fhue
Jæja félagar, þá er loksins landsmótið gengið í garð, það náttúrulega nennir engin að kíkja hingað inn á síðuna því allir eru á landsmótinu. Við óskum svo öllum góðrar skemmtunar um helgina. FHUE. Munum svo að stefna á Breiðumýri 25. júlí.
»
17.06.2008 23:04:18 / fhue
Var að setja inn myndir frá 2003. sem vert er að kíkja á. Steinberg.
»
12.06.2008 13:34:06 / fhue
Var að setja inn myndir frá Breiðumýri frá 1998 og 2001, til skoðunar endileg að kíkja á þær. Steinberg.
»
Síður: 1 2
|